Hugsa fyrir utan kassann, snýst í hringi, snýst á hvolf, trufla heilann, blikka rangeygð, fell á harðar flísar, ber steypuþakta veggina, lokuð inni. Öskra allar hugsanir út, hristi hausinn, hleyp á veggina, renn niður, sé blóð út um allt, horfi upp í loftið, klukkutímar líða. Hrekk upp, horfi til beggja hliða, sé rauðan penna á flísunum, tek hann upp og krota á veggina, heyri lykil stingast inn í skráargatið, konur í hvítum sloppum taka mig á höndum og fótum, Ég slæ þær í andlitið, þær slá...