Bjarni Guðjónsson, leikmaður Íslendingaliðsins Stoke, komst aldeilis í hann krappann þegar pabbi hans tók hann af velli í leiknum gegn Wigan um helgina. Strákurinn tölti í mesta sakleysi að búningsherbergjum Stoke þar sem hann væntanlega ætlaði að fá sér gott bað og nudd. Þá skiptir engum togum að út stekkur Darren Sheridan, leikmaður Wigan, og hann tekur Bjarna fastataki og byrjar að láta höggin dynja á honum. Öryggisverðir voru þó fljótir til og náðu að skilja þá í sundur áður en Bjarni...