Skemmtileg saga, virkilega jólaleg. En það var bara eitt sem vafðist fyrir mér og það var hvers vegna hætti klukkan skyndilega að ganga þúsund árum síðar, ef hún var löngu búin að fá nóg af þessari hátíð? Það skemmdi alls ekki söguna. Mér finnst það bara alltaf svo skemmtileg tilviljun hvernig það kemur í hlut einhvers eftir mörg ár að kippa málunum í liðinn, sem hefði alveg mátt vera búið að gera fyrir löngu. Eins og tilviki Sögu. En virkilega falleg saga. Gangi þér vel í keppninni. :)