Ég hafði allavega mjög gaman af þessari senu, sérstaklega af byrjuninni: Hiteval: Ég veit að ég er hér. Ég stend og skima, hreyfist hægt og rólega framogtilbaka, til hægri, til vinstri, til hægri, til vinstri. Til hægri er rúm og til vinstri eru dyr. Þar á milli silast veggur. Er þetta? Er eitthvað meira en þetta? Endilega haltu áfram, væri til í að lesa fleiri senur, mjög skemmtilegur frásagnarháttur og talmáti í gangi.