Drama sem er búið að skipuleggja 20 þátta seríu af breytist ekkert allt í einu og byrjar að vera á hverjum degi allt árið, það kemur kannski ný sería árið eftir en þátturinn er samt ekki sápa, heldur bara framhaldsdramaþáttur. Það er munur. Þó sápa sé bara sýnd í eitt ár er hún samt sápa, formið er margir þættir í viku í hverri viku í lengri tíma, og framleiðslan er skipulögð þannig frá byrjun, söguþræðir eru skrifaðir til að endast í marga þætti og leikarar eru ráðnir til lengri tíma.