Ok nú hef ég ekki mikið fylgst með umræðum um næstu bók, annað en vangaveltum. Er frú Rowling sem sagt búin að segja að einhver muni deyja? Hvað er að henni að kjafta frá svona hlutum? Ef þú ætlar að láta einhvern deyja í sögunni þinni þá bara lætur þú hann deyja og kemur öllum úr jafnvægi. Þú ferð ekki að segja frá því áður, einhver á að deyja en ég segi ekki hver… svo mikið kjaftæði. Ég var ekkert búin að heyra um fimmtu bókina áður en ég las hana, passaði mig vel að heyra enga orðróma og...