Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Re: Re: Alveg hreint ömurlegt!!!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Já, ég skil það alveg. En þetta var bara svona uppástunga. Gangi þér vel, ég vona að þið finnið lausn.

Re: nei á að þýða nei!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Litli frændi minn hafði það fyrir leik að rífa í hárið á fólki (hann var orðinn nógu gamall til að vita hvað hann var að gera). Það gekk ekkert að segja nei og skamm við hann, hann bara hló og gerði grín. Á endanum fór ég að toga laust í hárið á honum þegar hann togaði í mitt (þó svo fast að hann findi fyrir þvi en ekki svo að það væri neitt sérstaklega sárt) Í fyrstu vældi hann og togaði bara fastar í mig og ég sagði honum að ég myndi sleppa þegar hann sleppti. Á endanum var hann alveg...

Re: Alveg hreint ömurlegt!!!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Ég las frá þér á rómantík að þú hefðir verið heima hjá þeim eftir rörin og kyrtlana, hvernig gekk það? Væri möguleiki að þið væruð öll saman um jólin?

Re: Re: Re: He-Man

í Myndasögur fyrir 24 árum
ég fann He-Man lagið á Napste

Re: Að láta börnin sofa úti...

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Halló, halló. Ég þekki nú ekki marga sem láta börnin sín sofa úti í miklu frosti og í vondum veðrum. Ef veður er of vont þá sofa börnin inni, en ef ekkert er að veðri er mjög gott fyrir börnin að sofa úti í vagninum og fá gott loft. Ef til væri svona vel útbúið rúm handa mér úti í garði þar sem mér yrði ekki kalt en ég fengi samt gott loft þá myndi ég ekki hika við að sofa þar. Og ég veit ekki betur en að fjöldi fólks stundi það að sofa úti á sumrin, það heitir útilega. Dóttir mín sefur...

Re: Pokemon slæmt fyrir heilsuna

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Ég skil bara ekki þetta pokemon-æði. Ég meina hafið þið séð þessa þætti? Þeir eru ekki fyndnir, það er enginn boðskapur í þeim, það er varla að það sé spenna í þeim, teikningarnar eru ekki fallegar og það er ekki einusinni hægt að hafa samúð með þessum pokemonum. HVers vegna í ósköpunum er þetta að tröllríða þjóðfélaginu?

Re: Re: Til hamingju!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Einhverntímann fengu allir sem voru með yfir 1000 stig geisladisk. Þetta er aðallega til að forsvarsmenn huga geti fylgst með hverjir eru virkastir og verðlauna þá. Annars finnst mér að þessi stigagjöf skemmi fyrir frekar en hitt. Það kemur svo oft fyrir að fólk er að pósta allskyns rugli og svara einhverju bulli bara til að fá stig. Það skemmir fyrir annars vitsmunalegum umræðum.

Re: Komnir heim.

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Það var gott að heyra. Nú fer honum vonandi að líða betur. Skemmtið ykkur vel um helgina Kveðja Tzipporah

Re: Re: Re: Börn í formi

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Þau börn sem geta hvorki gengið né hlaupið eðlilega eru börn þeirra foreldra sem eru alltaf að flýta sér. Foreldrarnir gefa sér ekki tíma til að ganga hægar með littlu börnunum og halda því frekar á þeim eða keyra þau í kerrum. Svo er barnið orðið fimm ára og ennþá er haldið á því eða það keyrt í kerru. Sex ára er svo ætlast til þess að barnið geti bara hlaupið í skólann án þess að hafa nokkru sinni fengið æfingu í að ganga einhverjar vegalengdir. Ef foreldrarnir tækju sér einfaldlega meiri...

Re: Ég er TÍK!

í Rómantík fyrir 24 árum
Það er rétt sem gribba segir, ef foreldrarnir eru óánægðir er barnið ekki hamingjusamt. Ég á vinkonu sem átti sér þá ósk heitasta að foreldrar hennar myndu skilja í mörg ár, þar til þau loksins gerðu það. Hún sagði að það hefði verið mikill léttir fyrir alla. Börnin finna það svo vel þegar eitthvað er að. Ef þið skiljið eru miklar líkur fyrir því að þú fáir að halda barninu. Það er að sjálfsögðu mikilvægt fyrir barnið að hitta líka pabba sinn en jafnvel enn mikilvægara að það heyri ykkur...

Re: vögguvísur!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Ég á líka vísnabók. En fyrst þú varst að setja þetta upp hérna afhverju settirðu þá ekki öll erindin af Sofðu unga ástin mín og Bíum bíum babaló? Annars finnst mér þetta bí bí og blaka lag alveg út í hött. (ekki taka þessu til þín Giz, ég er bara að hneykslast á furðulegri vögguvísu.) Ég meina hvað er verið að fara með þessum texta? Það er ekkert samhengi í þessu, sá sem hefur hnoðað þessu saman hefur viljað sýna að hann kann að ríma. Pælið aðeins í þessum texta. Er ég ein um að finnast...

Re: Börn í formi

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Þetta skilar alls ekki klaufskari börnum út í lífið. Börn sem eru klár við tölvuna eru með mjög góðar fínhreyfingar (stjórn á mús, samhæfing hugar, handa og augna) og hafa góða þjálfun í að glíma við þrautir. Þau eru kannski ekki eins þjálfuð í grófhreyfingunum og eldri kynslóðir voru, en þau standa okkur mun framar í fínhreyfingunum. Framtíð barna okkar er tölvustýrð. Það fær enginn góða vinnu án tölvukunnáttu. Börnin verða að geta bjargað sér við tölvurnar og ég sé ekkert að því að kenna...

Re: Re: Börn í formi

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Hann var í fréttunum um daginn. Foreldrar hans eru mikið í vaxtarrækt (þetta er örugglega pabbi hans við hliðina á honum) og krakkinn er búinn að vera í ströngu æfingarprógrammi síðan hann var tveggja ára. Þetta er sjúkt.

Re: Re: Re: Re: Sjáanlegur þroski

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Æ, hvað hún er sæt!

Re: Ný lög!

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Það var ung japönsk kona sem sagði mér frá því að í Japan gætu konur ekki búist við að halda vinnunni sinni ef þær tækju sér meira en mánaðarfrí í kringum barnsburð. Pælið í því! Við höfum það greinilega nokkuð gott.

Re: Re: Re: Foreldrar sem særa börnin sín

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Já það er ekki alveg eins slæmt þegar ungur maður lemur annan ungann mann. Fórnarlambið getur að einhverju leiti varið sig og í framtíðinni forðast gerandann. Barnið getur ekki varið sig gagnvart foreldrunum og engan veginn forðast þau, sérstaklega ekki ef um ungt barn er að ræða. Foreldrarnir eru að misnota vald sitt og barnið hefur í fæstum tilvikum einhvern til að snúa sér til, einhvern til að styrkja það. Ungi maðurinn hefur í flestum tilfellum fjölskylduna sína.

Re: BARA tilgangslaus grein...

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Gangi ykkur rosalega vel. Sniðugt hjá ykkur að gera þetta að leik. Annars á ég alveg snilldar hitamæli, það er munnmælir sem er snuð. Barnið bara sýgur snuðið sitt í smá stund og framan á snuðinu byrtist svo hitinn. Og þetta er mjög nákvæmt.

Re: Re: Re: tilgangslaus grein

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Menntun og þroski eða hæfni fara ekkert endilega saman. Ég á akki við að það sé tilfellið hjá þér, en þannig er það oft. Ég þekki fullt af uppeldismenntuðu fólki sem ég myndi ekki treysta fyrir barninu mínu.

Re: Sjáanlegur þroski

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Já þetta er rosalega gaman. Maðurinn minn er með feiknarlega ljósmyndadellu, hann tók 100 myndir á skírnardaginn hennar dóttur okkar, hún er rétt rúmlega 3 mánaða og við erum þegar búin að framkalla ca 15 filmur með myndum af henni (reyndar líka af bróðurbörnum mínum tveim). Hann er að spá í að fá sér filmuskanna og þá þarf bara að framkalla filmurnar, sem er mikið ódýrara, og svo skoðum við myndirnar í tölvunni og látum svo seinna framkalla þær sem okkur líst best á. Mér finnst það nokkuð...

Re: Re: Re: Re: Foreldrar sem særa börnin sín

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Heyr heyr!!! Sammála síðasta ræðumanni

Re: Foreldrar sem særa börnin sín

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Ég sá líka ca. árs gamla könnun frá BNA sem sagði að eitt af hverjum fjórum börnum, undir 6 mánaða, sem koma inn á bráðamótökur spítalanna með höfuðáverka, séu þar af völdum foreldranna. Hugsið ykkur að lemja börn sem eru nokkurra mánaða. Hvernig á nokkurra mánaða barn að skilja hvað er í gangi? Það getur á engann hátt varið sig eða reynt að forðast ofbeldismanninn. Það grætur þegar eitthvað er að og fær ofbeldi í staðinn. Hvernig á það að skilja svona lagað. Vinkona mín var á bandarískum...

Re: Re: tilgangslaus grein

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Það var ekki beint verið að segja að Gizmina ætti ekki að vera stolt og að hún mætti ekki segja frá þessu, heldur var verið að tala um að þetta ætti betur heima á korkinum. Að sjálfsögðu samgleðjumst við henni öll, en svona stuttar reynslusögur passa betur þar.

Re: Re: Re: Montin Mamma!! ;o)

í Börnin okkar fyrir 24 árum
Jú það er hópur fólks, en hún er ein af þeim, sem þýðir að hún leggur sjálf mat á eigin skrif.

Re: Conspiracy Theory: The cloning of Homer Simpson

í Teiknimyndir fyrir 24 árum
Afhverju þarf sama svarið alltaf að koma fram 30 sinnum við hverri grein. Það svara alltaf allir því sama. Getið þið ekki lesið svörin sem eru komin og ef fram kemur það sem þið vilduð segja þá þarf ekki að endurtaka það, að minnsta kosti ekki þegar það hefur komið fram tvisvar. Er þetta bara einhver sorgleg leið til að ná sér í stig?

Re: Re: Re: Hver heitir eftir hverjum

í Teiknimyndir fyrir 24 árum
Já mér finnst asnalegt að hafa þessi stig. Þau skemma fyrir vitsmunalegum samræðum hér á Huga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok