Veistu eitthvað hvernig djass þú ert að leita að? John Coltrane ef þú ert að leita að einhverju þægilegu. Allan Holdsworth ef þú ert að leita að mjög smooth gítarleik. Pat Martino ef þú ert að leita að flottu beboppi. Frank Sinatra er ágætur fyrir Big Band og swing, Miles Davis fyrir fusion (alls ekki það eina sem hann hefur gert samt), Carlos Santana fyrir eitthvað með suðrænni sveiflu.
Bara spurning? “Ef þið vitið ekki hvaða hljómsveitir þetta eru þá eigið þið ekki að vera á þessu áhugamáli.” Pönk er ekki bara þessar 4 hljómsveitir og í raun eru þessar sveitir lítt merkilegar innan pönksins, þróuðu einhvern frekar óspennandi deathrock stíl, gott hjá þeim.
John Zorn? Naked City verkefnið hans er avant-garde djass, stundum bara villtur “wtf”-djass en grindcore og margt annað læðist með. Tónlist sem steikir á þér heilann um leið.
Big band, swing og bebop er líklega málið. Miles Davis og Frank Sinatra bara, þá þekkir fólk kannski eitthvað. Bætt við 18. nóvember 2006 - 14:37 Eða bara Carlos Santana, mjög skemmtilegt, smá rokkað og vel djassað salsa, partítónlistin sko.
Notaði það væntanlega í þeim skilningi að þetta er “fusion” (ísl. samruni) af þessum tvem stefnum. En þeir eru já bræðingur af poppi, rokki og pönki. Mín vegna má umræðan um þá fara fram hér, á alveg jafnt við á /rokk.
Njah. Mr. Bungle og Estradasphere eru avant-garde. Avant garde þýðir í rauninni bara “á undan tímanum” og á við um mjög experimental eða fjölbreytt bönd.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..