Eitt sem þú gleymdir… hluturinn getur líka verið hannaður af einhverjum hljóðfæraleikara :) Þarf ekki endilega að vera beint hannað fyrir hann þó að það sé nú oftast staðreyndin.
Sammála honum með pickguard-ið (eða -inn). Einmitt þetta Pearl look sem mér finnst gera hann svo cheap-strat-looking. Annars efast ég ekki um að þetta sé geðveikur gítar … væri alveg til í svona. En það fyrsta sem ég mundi gera væri að skipta um pickguard. (setja bara svart eða chrome eða eitthvað … allt annað en þetta) Til hamingju með gítarinn samt (BjörnTB).
Hann er flottur… og ég efast ekki um að hann sé góður líka :) http://www.espguitars.com/images/guitars/sc600_3tb.jpg http://www.espguitars.com/images/guitars/sc600_ng.jpg Hvorn mundiru velja? Persónulega hugsa ég að ég mundi velja þann sem er með brennda kannta og svona ljósgult eftir miðjunni. En annars finnst mér þeir báðir fallegir. Og já, tek undir með BjornTB að Esp/Ltd er einn sá besti gítarframleiðandi sem ég hef komist í tæri við.
Djöfull er ég sammála þessu með tabs-ana. Maður verður fokking háður þessu eftir að hafa notað þetta í nokkrar vikur … hata IE fyrir að vera bara með “Open in new window” … Mjög bitur, ég veit :)
Eftir því sem ég best veit er Jordan svona “lúxus” eða dýrari týpan … oftast með topplúgu held ég, og já eins og hefur komið hér fram að ofan, einhverju kit-i og felgum sem hún hefur umfram þessar “venjulegu”.
Hehehe… hef ekkert vit á Jackson gíturum :D Þetta var bara það sem kom (mest af) þegar ég leitaði að Jackson flying v kerry king á Google. Var bara að reyna að hjálpa fyrst fólk er of dull til að senda inn mynd með sölukorkum. Meina, fólk ætti að vera búið að læra þetta núna… það kemur alltaf: “áttu mynd” Afhverju ekki að gera það inn the first place til að spara sér að þurfa að svara 5-10 manns eða senda þeim e-mail með mynd/um.
Og hver var að halda þvi fram að hann styddi slagsmál í íþróttum??? Og nei, það er rangt að það sé “Zero tolerance” í hockey úti í USA og Kanada. Þar eru reglurnar þannig að slást má með berum hnefum þangað til annar/báðir aðilar lenda í ísnum. Þá stökkva dómararnir til og henda sér á mennina sem svo eru sendir í “kælingu” (eins og ég hef svo oft tekið fram hér áður). Ef þú trúir mér ekki þá ættiru að kynna þér þetta aðeins betur (t.d. með því að horfa á myndböndin sem ég póstaði hér áður og...
Þú hefur áhuga á gíturum s.s.? ok… þú sérð þá að Esp LTD er eflaust það eina sem ég á í þeim flokk En ég gæti annars boðið þér Rafmagnstrommusett ef þú hefur áhuga á því … hef verið að spá í að selja það að undanförnu.
Er einmitt farinn að venja mig á að gera það áður en ég start því ef ég gleymi því, þá verður “mamman” alveg brjáluð … og það er ekkert sérstaklega gaman (fyrir eyrun amk. og tala nú ekki um þegar maður er með farþega).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..