Takk, alltaf gaman að fá hrós :) Var reyndar ekki viss hvernig ég ætti að hafa himininn, þar sem ég hélt að ef ég hefði hann bjartan næst sjónum þá væri kannski ekki hægt að sjá að það ætti að vera um hádegi (sólin er mjög hátt uppi á þessari mynd). En ég er reyndar ekki vanur að teikna svona sjávarumhverfi svo ég gæti hafa gert nokkur byrjendamistök.