Shit maður! Hvaða aukapakka þarf ég að kaupa til að fá þennan björn? Djöfull langar mig að sjá þetta :) PS. Það eina sem ég get ráðlagt þér er að sleppa því að kaupa Efnafræðisettið nema þú sért tilbúinn til þess að missa simma.
Það er hægt að kaupa alveg ótrúlega ódýra en samt góða kassagítara í Rín :) Ég mæli með Epiphone PR-100 sem kostar 22.000 en þú getur svosem keypt þér klassískan Hohner á 8900 ef þú ert voðalega fátækur:)
Þetta eru slögin. Miðað við venjulegan takt (sem ég man því miður ekki hvað var) Þá áttu að slá fjórum sinnum fyrir hverja línu. Dæmi: E |-|-|-|- Hérna slærðu E fjórum sinnum E D |-|-|-|- Hérna slærðu E tvisvar og D tvisvar It's that simple :)
Samkvæmt Heavier than Heaven, ævisögu Kurts, reyndi hann oft að drepa sig og dagbókin hans bendir til þess að hann hafi verið í sjálfsmorðhugleiðingum síðan hann var 14. Annars finnast mér hin rökin góð.
Hvað er langt síðan þú hefur heyrt í þeim? Þeir hljóma bara ekkert eins og Nirvana. Þeir spila mun flóknari lög og í allt öðrum stíl og það er fullmikið að kalla þá Nirvana ripp-off af því að söngvarinn er með sítt ljóst hár og ráma rödd. Það er eins og að kalla Molesting mr. Bob Slipknot rip-off af því að þeir spila hardcore.
Ég myndi vilja kalla álit þitt fremur barnalegt. Það er mjög leiðinleg alhæfing þegar fólk segir að einhver hljómsveit “sökki” og mér finnst það ekki eiga heima hér fremur en annarstaðar.
Farðu fyrst í gítarnám. Það er leiðinleg staðreynd fyrir ólærða gítarleikara að það er ekki hægt (eða þá mjög mjög erfitt) að meta þá til stigs. Þú ert náttúrulega með mjög marga möguleika en ég mæli með Gítarskóla Íslands. Farnist þér vel :)
Gítarar: La Patrie Concert (kassagítar) Epiphone SG Fender Jaguar Effectar: Boss Super Overdrive Boss Wah Wah Magnarar: Eitthvað nafnlaust rusl sem mér var gefið
Ég er bara að spá… Af hverju virðast allir halda að Bill Gates sé eitthvað svakalega inn í málunum hvað varðar X-Box? Hann hefur áreiðanlega miklu þarfari hluti að fást við en einhverja helvítis leikjatölvu og sem dæmi má nefna að hlutabréf í Microsoft hafa hrapað mjög hratt á undanförnum árum og allar líkur eru á því að þau haldi því áfram Þessu beini ég að ykkur öllum, þó að ég hafi svarað PutZ.
Þetta er örugglega lægsta form af lífveru sem ég hef heyrt um, sérstaklega í ljósi þess að tónlistarmenn hérlendis eru oftar en ekki staurblankir! Hversu skelfilegt er það að ræna hljóðfærum og fylgihlutum þeirra?! Það er eins og ekkert sé heilagt lengur!
Ég er að svara ykkur öllum núna er ég segi að viðkomandi hlutir hreyfist óreglulega. Gervitungl hreyfast ekkert hraðar um himininn en stjörnurnar samkvæmt öllu því sem mér er sagt. Ég þori ekki að dæma en öll álit eru velkomin
Mín kenning er sú að það sé ekki hægt að breyta gangi sögunnar með því að ferðast aftur í tímann því að sagan er búin að gera ráð fyrir því. Ég trúi þ.a.l. á örlögin en það gera að sjálfsögðu ekki allir :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..