Það standa fáir framar frændum vorum í austri þegar kemur að sköpun á undarlegum og flóknum búningum. Oft gengur þetta svo langt að það er ólíklegt að gervin myndu nokkurntíman ganga upp, og myndin hér að ofan er prýðisgott dæmi um þvílíka múnderingu.
Auglýsingaskilti á Akihabara lestarstöðinni fyrir hina sniðugu seríu Ichigo Mashimaro. Núna er þarna plakat fyrir OVA-ið, fyrsta þátt, en fansubbið af honum kom einmitt út í gær (13.03.2007).
Þetta er hún Mikuru Asahina, en hún lék stórt hlutverk í þáttunum sívinsælu Suzumiya Haruhi no Yuuutsu, eða The Melancholy of Haruhi Suzumiya eins og kaninn kallar það. Það er vinkona okkar Noizi Ito sem teiknaði þessa mynd.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..