Fegurðin er allt í kringum þig og innra með þér, þú þarft bara að gefa þér tíma og leyfi til að sjá hana. Þú skildir ekkert eftir, þú bættir því bara við. Þó upplifunin dofni lifir hún sem leiðarljós minningarinnar í núinu. Heimurinn breytist í sífellu, breytingar eru talsmáti tímans, og án þeirra væri ekki neitt. Ef þú vilt að sá sem þú sást plagi þig ekki verður þú að sætta þig við að hann er enn hluti af þér, þó þú hafir falið hann. Einungis með því að leyfa honum aftur að koma í ljós, og...