Ég var fatstílslaus þar til í 6. bekk, þá fór maður í hip-hop gallann eins og allir í þá daga. Hélst í því fram í svona 9. bekk, fór þá að fara meira út í hnakkann. Tók samt aldrei verulega á því í þeirri tísku, en var í svoleiðis fötum fram að menntó. Þá fór ég í uppreisn gegn útliti, og var alveg sama í hvaða fötum ég var, gamlar gallabuxur, gefins bolir, einhverjar peysur og almennt stílleysi. Safnaði líka hári. Svona átján fór ég út í svört föt, fílaði snjáðar gallabuxur og...