Það kemur þér ekki við, frekar en nokkuð annað sem ég geri á internetinu. Það er einmitt það sem mér finnst svo frábært við blessað internetið, persónufrelsi er þar gert mun hærra undir höfði en í kjötheimum. Allar fasískar ákvarðanir á borð við þá að loka ringulreið, sama hvort þær eru í höndum ríkisins eða einkageirans, er mér sem eitur í beinum, því þær vega að frelsi mínu til ákvarðanatöku. Ég er fullfær um að velja sjálfur hvaða síður ég hyggst stunda og hvernig ég kem fram þar. Ætti...