Reyndar vill dönsku kennarinn, vitleysingurinn sem hún er, alltaf kalla þetta “Dönsku Skólann” af því að einhver heimskuleg hefð sem enginn veit um né þekkir til á að vera frá Danmörku. Þessi uppblásna dúkka veit svosem lítið í sinn haus. Hún er nú svosem ágætis kennari hvað tungumál djöfulsins varðar. Hún á þó lítið eftir að kenna mér næstu daga, enda er ég það þrjóskur að ég mun ekki opna bók sem er rituð á dönsku máli. Einnig ætla ég að sniðganga danskar vörur gjörsamlega héðan af.