Hörku leikur, og þá sérstaklega seinni hálfleikurinn sem var gríðarlega spennandi. Mark réttilega dæmt af Lille þegar seinni hálfleikurinn var u.þ.b hálfnaður. Og svo glæsilegt mark hjá gamlingjanum sjálfum Ryan Giggs. Menn geta nú deilt um þetta mark, en í raun var ekkert að því eða aukaspyrnunni. Illmennið, frá sjónarhorni Lille manna allavega, er að sjálfsögðu dómarinn sem hefði mátt fara öðruvísi að þessu. En fullkomnlega löglegt mark sem ekki hægt er að deila um og frábær úrslit.