Wtf, ég vissi ekki að þetta væri komið í gegn. Er verið að framfylgja þessu á stöðunum? Hef ekki farið á skemmti- eða veitingastað eftir 1. júlí svo ég muni eftir. En já, fjölmiðlar mættu nú alveg láta mann vita af þessu, þetta eru mjög góðar fréttir hvað mig varðar. skuggi85 er greinilega reykingamaður, kemur með kjánalega ályktun um að útireykingar eigi eftir að auka glæpatíðni. Ég leyfi mér að stórefast um að það sé neitt orsakasamhengi þar á milli, enda hljómar þetta fáránlega.