Inntökuorð eða ekki, þá er þetta samt íslenska. Pulsa á dönsku er pølse, ekki pulsa. Ef fólk væri að tala dönsku, þá segði það ekki pulsa. Þessi orðabók sem ég tók þetta úr er frá 1980 svo þetta orð er ekkert nýtt af nálinni.
Mjög góðir þættir verð ég að segja. Hef fylgst með þessu frá upphafi og varð eilítið skeptískur þegar ég frétti að Dean færi til heljar og kæmi aftur. En það hefur virkilega ræst úr þessu. Eitthvað word um 5. seríu?
http://www.youtube.com/watch?v=Ili-xFMBBkI Fucking awesome lag með þeim. Elska Sounding the Seventh og Waking the Fallen. Bætt við 18. maí 2009 - 02:49 Try to tell this guy his guitar playing sucks
Alveg sammála þér hérna. Veit ekki hvernig það væri ef þeir væru enn að semja einhver Dookie lög, þó það sé nú frábær plata og allt það. Heyrði líka viðtal við þá kumpána og þar er Billie spurður út í þetta og hann telur þá í anda enn vera pönk hljómsveit, þó tónlistin þeirra varíeri.
Byrjaði sjálfur þegar ég var 10 ára, fékk þá kassagítar í jólagjöf og byrjaði að glamra upp úr einhverri bók. Svo þegar ég var 12 ára fékk ég í afmælisgjöf einhvern byrjenda-rafmangsgítarpakka og byrjaði eitthvað að glamra (það liðu mánuðir þangað til ég fattaði hvað overdrive takkinn gerði). Þá fór ég að byrja að spila mest svona pönk/rock, eiginlega bara power chords og auðveld sóló. Svo var það ekki fyrren seint síðasta ár að ég fór að spila harðari tónlist + kröfuharðari sóló og slíkt....
Ég finn til með þér. Ég lendi nú ekki í neinu svona. Ég á bæði fartölvu sem ég nota í skólann sem ég keypti fyrir eigin pening. Svo keypti ég mér reyndar líka borðtölvu fyrir eigin pening. Ég er líka með sjónvarp í herberginu mínu sem safnar ryki, mátt eiga það ef þú vilt. Geri svo einstaka húsverk þegar ég er neyddur til. En fólk er ekki allt eins.
Adblock Plus - Til að geta blockað myndir og ads? Copy link text - Vegna þess að ég nenni ekki að þurfa að highlighta linka og ctrl+c DownloadHelper Flagfox Icelandic dictionary Svo er ég með NASA Night Launch þema fyrir Firefox 3
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..