Ég hef nú sjálfur farið oft upp á Heilsugæslu útaf vandamáli sem ég greini ekki frá hér. Þurfti oft á umbúðaskiptingu að halda og fór þess vegna títt þangað uppeftir. En í hvert skipti sem ég fór fékk ég hvítan miða, gulan miða og rauðan miða. Rauða miðann átti ég að geyma og safna rauðu miðunum og undir lokin átti ég að geta fengið afslátt. Grennslastu fyrir um þennan afslátt, gæti bjargað buddunni aðeins, þó það væri nú ekki mikið…