Okei ekkert taka þetta alvarlega ef þið eruð ekki búin að sjá hana, því miklar væntingar eru ekki góðar. En ég labbaði út af myndinni og ég hugsaði strax, okei þetta er allavega í top 3 af bestu myndum sem ég hef séð.
Já, sitt sýnist hverjum. Mér persónulega fyndist það of staðlað eitthvað, ófrumlegt að hugsa þannig finnst mér. En ég meina maður á náttúrulega að gera það sem manni sjálfum finnst flott. :)
Hvar er frumleikinn segi ég nú bara? Bætt við 20. febrúar 2008 - 23:27 Mér finnst þetta flott svona, hitt er bara týpískt. Ég er strax farinn að ímynda mér eitthvað með þetta, að sjónarhornið sé t.d. tekið úr flugvél í beygju. Finnst það flott.
Ég er í alvörunni byrjaður að reyna að hætta að versla við þá því það fer í taugarnar á mér hvað hljóðfærabúðir reyna oft svo lítið til að koma móts við viðskiptavini. Situr mér fast í minni þegar ég sendi víðs vegar e-mail í leit að einhverju stykki eða hljóðfæri, fyrir rúmum 2 árum kannski. Og ég held að engin af hljóðfærabúðunum hafi svarað, ég sendi á 3 búðir og gerði það allavega tvisvar á allar en fékk svo léleg svör að það bara pirraði mann rosalega. Þetta finnst mér bara rosalega...
Tómarúm er alls ekki ekkert, þú ert með svæði sem þú hefur nafn yfir útaf einkennum svæðisins. Ekkert er frekar það það sem var fyrir utan þetta litla svæði sem kallaðist mikli hvellur í byrjun tímans. Þar fyrir utan var ekkert, en samt sem áður ekki ekkert því ef þú segir að það sé ekkert þar þá ertu kominn með eitthvað, sem er einfaldlega bara ekki rétt.
Það sem drepur þig er aðdráttaraflið. Svarthol er eitthvað svæði í geimnum sem hefur að geyma svo mikinn massa(og í eðlisfræði dregur allur massi hluti að sér, semsagt massi=aðdráttarafl) að það sleppir ekki einu sinni ljósi frá sér. Hvað þá þér…. þú kremst svo mikið að við getum ekki ímyndað okkur að hverju þú verður… ég held allavega að flatkaka sé ekki rétta orðið.
En sorry ég sé að angra þig en ekki ertu með MSN… ég væri geðveikt til í að spyrja þig nokkurra spurninga um skólann :D Er nefnilega að fara í þetta í haust í hljóðvinnsluna
Hraðari diskur hljómar reyndar mjög vel, en stærri HD er ég ekkert að spá í. TV kort skiptir mig engu en skjákortið lítur vel út. Skoða þetta betur, takk :)
Þú ert kannski að ruglast við að það var Thorin leiðtoginn og svo 12 í viðbót eða eitthvað. En já Gandalf fór alltaf frá og kom svo inn aftur í svona lykilatriðum í sögunni, það fór reyndar enginn með honum. Annars er þetta ryðgað hér líka, langt síðan ég las þetta.
Það voru 13 dvergar, Bifur, Bofur, Bombur, Dori, Ori, Nori, Óin, Glóin, Balin, Dwalin, Thorin, Fili og Kili. Tókst meira að segja að nefna öll nema eitt án þess að kíkja á netið. Held þetta sé allt rétt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..