Það fer eftir hvar á landinu það er. Það er ekki til einn staður sem heitir landsbyggðin og engin vinna er að fá. Það eru margir staðir og misjanflega mikil vinna eftir hvar þú ert. Ef þú kemur t.d. austur er alveg víst að þú getur fengið vinnu, bara spurning við hvað. Það er t.d. verið að byggja álver í Reyðafirði (eins og þú veist vonandi) og húsnæðisverð þar er að hækka og fólki er að fjölga. Ég er ekki að tala einungis um Reyðafjörðinn sjálfan heldur firðina í kring. Ég veit ekki hvernig...
Ég persónulega er feginn því að það séu komnir nýjir ritstjórar og hafa forsíðufréttir DV oft hneysklað mig áður eins og t.d. um þetta tiltekna mál. Þetta var komið útí það að vera slúðurblað frá því að vera virt fréttarit. Þrátt fyrir að ég kenni DV ekki um dauða mannsinns, og finnst margir íslendingar frekar harðorðir um þetta mál þá finnst mér gott mál að það séu komnir nýjir ritstjórar og vona að ég geti farið að lesa DV aftur.
Það er alveg rétt, það er ekkert annað hægt að gera en að hætta að kaupa blaðið og t.d. eins og er búið að vera að gera, safna undirskriftum til að skora á þá að hætta þessu þó ég efist stórlega um að þeir hætti því. Meðan fólk “er fifl” og heldur áfram að kaupa þennan sora þá hætta þeir eflaust aldrei.
Ok, ef maðurinn hefði verið saklaus, hefðu þeir þá logið? Það var það sem þú sagðir hér að ofan, og ekki reyna að skafa af því. En staðreyndin er sú að ef hann væri saklaus, þá hefðu þeir samt ekkert logið neinu.
Ef vitnisburðurinn er lygi þá er það allt annað mál, DV sagði ekki að hann væri sannur, bara að hann lægji fyrir. Það er bara einmitt það sem ég er að tala um.
Þetta er frekar stór spurning sem fáir geta eflaust svarað. Ég persónulega veit ekki hvað mér á að finnast eftir að hafa lesið þessa grein, margt af því sem þú segir er maður alveg sammála með. En ef maður horfir bara á aðra hlið málsins þá finnst manni bara frekar aumingjalegt að birta allar þessar upplýsingar um manninn, þó svo þeir megi það kannski. En aftur á móti hefði hann líka geta svarað fyrir sig í fjölmiðlum og bendir enn meira til þess að hann hafi framið þennan glæp fyrst hann...
Ef ég set mig í sömu spor þá hefði ég einfaldlega kært þá fyrir ærumeiðingar og heimtað skaðabætur sem samsvara laununum sem ég tapaði auk nokkurra miskabóta og verið duglegur að koma því fram í fjölmiðlum að DV hafi logið. Miðað við það sem ég las, þá lugu þeir engu.
Sé þessi maður sekur þá verður að segja honum til hróss að hann spilaði rétt úr sínum spilum, kominn á efri ár þegar glæpir hans eru við það að komast upp og tekur þá ákvörðun að kála sér bara til að þurfa ekki að takast á við fortíðardraugana - og kemur trúlega í veg fyrir einhverja opinbera umræðu um málið, því öll erum við nú Englar eftir dauðann. En hvað ef hann er saklaus? Hefurðu pælt í því?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..