Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Skuggabarn
Skuggabarn Notandi frá fornöld Karlmaður
1.090 stig

Firrta veröld (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mér finnst heimurinn eitthvað svo klikkaður núna, eða er það bara ég? Mér líður eins og hugsanir mínar séu fastar hvirfilbil sem þeytir þeim út og suður svo að ég næ ekki að festa eina hugsun heldur snýst allt og snýst og mér líður eins og ég sé klikkaður. Eða er það heimurinn? Kaupa þetta kaupa hitt, borða þarna, eignast þetta, gera hitt og vinna, vinna og vinna. Vinna svo mikið til að eiga fyrir öllu sem ég þarf að gera, kaupa og eignast. Til þess að verða hamingjusamur? Þvílíkt rugl. Eða...

Nútímasamband (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Tveir verða að einum, þegar gleymi ég mér. “Hæ, ég er hræddur við tilfinningar, má ég skapa með þér samband byggt af lygum, til að fela mig í?” “Ég skal gefa þér umhyggju, og annast þig. Ég skal gleyma eigin siðferði; eigin lífi; áhugamálum, aðeins til að sína þér hve sérstök þú ert!” Og tveir verða að einum. Svo verð ég heppinn, mér batnar, breytist heilann helling, og kemst að því, að ég veit ekki hver þú ert! Úr felum ég skríð, og tilfinningarnar sé, og sambandið hrynur. Og einn verður að tveim…

Sem lífið fljúgi hjá (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Sem lífið fljúgi hjá, er ég staldra hér við, í nístandi kuldanum og horfi á stjörnurnar. Man þann dag vel, er ég með strákunum í snjónum barðist í hetjulegu stríði. Svo kom veruleikinn, bankaði mig í hausinn er móður mín líf sitt reyndi að taka. Drengur ég hætti að vera og þá Prinsinn ég varð, því engum ég hlýddi í veröld svo hræðilegri. Faðirinn ekki maður, því hann laug, sveik, af því hann var svo ofboðslega hræddur. Móðirin ekki kona, því hún kunni ei að læra, heldur aðeins að væla og...

Brostnir draumar - revised (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Lilja Ló gengur um eina napurbjarta nótt, já þar fer hún, svo sæt og fín og flott, fyrir henni er lífið, æðislegt og gott. Hún á framtíð bjarta, og draumum skartar, Lilja Ló, veslings unga fljóð, lífið er ekki lítið fallegt ljóð. Naggur Nostri, var dökkur á brún og brá, hann vildi ekkert gera, en allt vildi fá, veröld vildi flýja, því ekkert gott hann sá. Hann glæpi framdi og konur lamdi, Naggur Nostri, sem plágan hann er, því með hamingjuna burt hann fer. Kvöld eitt Lilja Ló um eina götu...

Svo ofsalega firrtur (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Svo mikil óreyða býr hér, í skýrri hugsun minni. Ofsafengin ást í garð þess ljóðs , sem ég yrki á morgun. Þvílík reiði útí allt er ég er, sem er ekki neitt. Dauðinn lifnar við og já mér liggur, er löngu dauður ég er.

Hið sorglega tafl (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Arafat og Sharon sitja við taflborð, tefla litla skák, dómarinn bíður, áhorfendurnir sofa, skákin er svo löng, svo löngu búin. Tveir kóngar einir eftir standa, neita að gefast upp, en geta ekki unnið, neita að gefast upp, því líf þeirra er tafl. — En í raunveruleikanum á lítilli grein, í miðri eyðimörk gamla landsins, þar sem vindurinn feykir sandinum, eru tvennar hálsfestar merktar… …Arafat og Sharon, bræður í stríði er neituðu að gefast upp, fyrr en allir voru dauðir…

Tristan revised (6 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
1. Hluti Miðvikudagurinn 21.09 kl. 15:05 “Hvað viltu hér Tristan? Ég hélt þú hefðir verið sendur til Færeyja eftir seinasta klúðrið.” Sagði varðstjórinn glottandi. Þessi feiti durgur, á auðvelt með að rífa sig hérna í sínu verndaða umhverfi. “Ég þarf að ræða við einn vistmann sem er í varðhaldi hjá þér Óli, hann er kallaður Sjonni.” “Já Sjonni, horaður dópistaræfill” hóstaði varstjórinn upp úr sér. “Þeir komu með hann í gær, hann er enn í vímu. Hann er í klefa 2, ég skal opna. Hvernig var...

Vefstjórinn (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Það er svo margt sem mig langar að segja, en get ekki sagt. Því ég er Vefstjórinn og glæstu neti lyga nú stjórna . Kerfi þar sem blekkinginn er hornsteinn og sannleikurinn hið eyðileggjandi afl sem ég verð að halda þaðan frá. Því er starf mitt þannig, að það felur mig í spennitreyju, sem heldur mér vernduðum, frá tilfiningaflórunni sem ásækir mig. Svo í vefnum ég .

Tristan, final part (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Bakerinn eins og hann var kallaður var tölvugúru sem vann oft fyrir glæpamenn í Reykjavík. Tristan og Baker áttu sér langa sögu saman en ferðir þeirra höfðu ekki skarast í 2 ár, ekki fyrr en nú. Tristan bankaði á hurðina og lítill feitur strákur kom til dyra. “Jesús! Hvað ertu að pæla að koma heim til mín, ef einhver sér þig verð ég drepinn! Komdu inn komdu inn.” “Langt síðan við höfum sést, alltaf gaman að sjá þig. Ertu með einhvað í ofninum?” Spurði Tristan glottandi. Jón Baker, eða Jón...

Svartur (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Líkt og ekkert færir fjallið, fjarlægir enginn þennan þunga af brjósti hans burt. Brottinn, hann veit að það er líf, en sér það aðeins hjá hinum. Sjálfsvorkun, þunglyndi, þeir gáfu því nafn. - En þótt fjallið hafi nafn, mun samt ekkert því hagga. Þeir kölluðu “tilfining eða ótti; já val eða tilviljun.” - - Skiptir það máli, þegar ekkert annað gerir það?

Tristan, part 4 (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Það var farið að rökkva úti. Tristan var búinn að ganga út í 2 tíma, þungt hugsin um atburði dagsins. Hann ákvað að setjast niður á bekk við Austurvöll og kveikti sér í rettu. Dagurinn hafði byrjað mjög vel. Eftir 3 tíma yfirheyrslur með Ljúbó og lögmanni hans hafði Ljúbó ákveðið að það væri betra að selja Ingó til þeirra en að vera seldur til FBI, klár strákur. Í staðin fengi hann að vera íslensku fangelsi í 5 ár sem var mjög góður díll. Það kom í ljós að hátt settur yfirmaður hjá íslensku...

Þú... (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Stundum - finnst mér ég vera svo ómerkilegur. Finnst sem tíminn standi í stað, að ljósið hafi mér gleymt. Að ég sé munaðarlaust barn sem tunglið gleypti. En svo kem ég til þín - mín yndisfagra dúfa, og þú gerir mig að manni. Færð mig til að finnast ég vera sem meistarinn sem allir dá; kennarann sem allir vilja fá; hetjuna sem allir vilja sjá!

Hver erum við? (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég sit hér, aleinn, í stórri skólastofu, fullri af mis námsfúsu fólki. Málið er að mér svíður í stóru sári, sem svíður svo ofsalega sárt! Ég lít í kringum mig, sé Calvin Klein gallabuxur, Dolce Gabbana gleraugu. Ég sé nýju klyppingu David Beckham, og nýju hárgreyðslu Jennifer Aniston. En hvað annað? Ekkert, nema steingerðar og fallega skreyttar grímur… En sárið í sálinni svíður og svefninn mín bíður, og fer þá burt allt, og í gleymskunni fæ að ráfa, uns ég vakna og man að ég gleymdi Prada...

Tristan, part 3 (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Það var dauðaþögn í salnum, maður hefði getað heyrt í mús trítla, svo *klick* Tristan að hlaða Samsoninn. Aðeins 2 menn stóðu nú á milli hans og Ingó Gulls og Rússans. Árásin hafði heppnast mjög vel, 14 bófar lágu í valnum, þar af 8 sem Tristan hafði persónulega afgreitt. Ljósið flöktaði um eftir að einhver hafði í látunum hitt ljósakrónuna. Tristan leit snögglega yfir skápin sem hann skýldi sér við, sá að einn þeirra var við barborðið en hinn var í felum bakvið sófan. Rétt eftir að hann...

Að vera til… (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hví allur þessi dapurleiki? Við erum öll svo fögur, en jafnframt svo döpur. Þyngslin lemmja mig niður, neðar, þar til ekkert er. - Svo ég fer, og er… Djúpt, djúpt í ólundarlegum pittum dapurleikans legg ég mig niður, og ég bíð eftir einhverrjum sem getur afhjúpað þann hrylling sem ætíð mér fylgir. Því það svíður, þú skilur, því það svíður…

Karlar (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Líkt og hýddur hundur þessi hópur er. Stundum glaður, oftast hræddur, en alltaf spenntur. Hann getur glefsað, þó góður sé, vill að sér sé strokið, og í sátt sé tekinn, en passaðu þig, því hann á til að bíta fast, við allra minnsta tilefni.

Við (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvað erum við annað en spegilmynd af hvort öðru? Það er það sama sem við innst inni þráum. Að ganga uppá fjallstoppinn og upplifa fegurð himnana. Að taka þátt í leikjum, vera með og sigra. Að taka þátt í leitinni miklu, að finna og vinna! Ávalt munum við vilja, velja og vona. -

Tristan, part 2 (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Tristan var búinn að bíða í 3 tíma í bílnum rétt við höfnina án þessa að nokkur lifandi vera hefði komið. Sér til skemmtunar hafði hann tekið í sundur Samson 2045 byssuna sína í sundur og fægt hana vel, hann elskaði þennan grip. Ég trúi ekki að skítseyðið hann Sjonni hafi látið þá vita af mér, hugsaði Tristan með sér. Hann getur varla verið svo heimskur! Og rétt í því sá hann ljós, það voru 3 svartir BMW, nýa típan og einn stór trukkur. Úr hverrjum bíl gengu 3 menn einn þeirra var áberandi...

Tristan, part 1 (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
\“Hvað viltu hér Tristan? Ég hélt thú hefðir verið sendur til Færeyja eftir seinasta klúðrið!\” Sagði varðstjórinn. Þetta feita fífl, á auðvelt með að tala hérna í sínu verndaða umhverfi. \“Ég þarf að ræða við einn vistmann hjá þér Óli, hann er kallaður Sjonni.\” \“Já Sjonni, horaður dópistaræfill, þeir komu með hann á þriðjudag. Hann er í klefa 2, ég skal opna. Hvernig var það annars Tristan, eftir málið með Ægi Lu?\” Sagan er fljót að ferðast, aðeins 2 vikur liðnar og einhvað lólæf í...

Kossinn (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Kossinn, minn helsti unaður. Tveir munnar mætast, tvær varir snertast, tvær sálir faðmast. - Tíminn stoppar. Líkaminn hitnar, hugurinn róast, sálin svífur. - Já kossinn, mín dýrmætasta gjöf, sem stóri andinn í skýjunum gaf mér; sem mín ástkæra dúfa fær með mér að njóta; sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir. Lifið heil, Lifið vel, Lifið frjáls.

Stjarna (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hún hleypur mér að, ég lít. Hún í hönd mína tekur, ég þygg. Hún hlær, sögur segir, ég brosi. Hún sér leikur, ég græt. - Því hún er ég, fyrir langa löngu, þegar hamingjan var minn vinur; þegar aðrir mig elskuðu, og lífið var dans; Þegar sögurnar voru sannar og allt var svo skýrt. -

Ferðalag (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Stormandi, þýtur veröldin hjá, það eina sem reyndist kyrrt var þokan sem ég vildi aldrei fá. Ég sé, en samt svo lítið, já fegurðin hvílir hér alstaðar, en sjaldan fæ á hana litið. Og heimurinn að fótum mínum lá, en firringin fljótt mér náði, og sjaldan þá, merkilegt ég sá.

Tilgangur (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég sfíf inn hvítan ganginn, englar allt í kring. Stofa, sest niður, sé vofur kroppa í græna töflu. Lesin eru ljóð, um einhvað sem jafnvel aldrei var. Svíf í aðra stofa, sest, vofur, ljóð, loks út, og vakna. Mér þætti mjög vænt um þið væruð til í að túlka ljóðið :)

Soldier (6 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Snarruglaður, íklæddur ótta hleyp ég einn um vígvöllinn, veit ekkert, hef ekkert, finn ekkert, nema þjáninguna sem faðmar mig. Ég er týndur stríðsmaður sem hefur gleymt því að eitt sinn tilheirði ég vöskum flokki manna sem saman gat nánast allt. Ég var; Legioner hjá Sesari; Samúrai hjá Keisara; Riddari hjá Drottningu. - Við vorum ósigrandi en það man ég ekki… Því að í höfði mér býr ein rödd, sem er með tímanum hefur orðið ráðandi, óþolandi rödd, blekkjandi rödd, sem vill engan flokk, heldur...

Freystingin (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Mín helborna dís sem sál mína togar að sjá þig mín bíða í stingandi regninu svo ógurlega falleg sem sólin sem rís. Áður ég aðeins var ungur og óáreyttur sat ég á álfasteini reikaði þá hugurinn frjáls hann þá flaug svo langt, svo langt. Minningin mig vitjar er hitti ég hana fyrst þokkafull sem hópur naktra yngismeyja allar saman, í laumi hún merkti mig sinn. Í faðmi þínum þá ég vildi felast undir ofnu teppi skapað af þjáningu regnið mig ei fann sólin mig ei sá. Lífið þaut hratt hjá stakst...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok