Við eigum líka bíl sem er með frekar flott merki á sér, merkjunum hefur verið stolið af tvisvar eða þrisvar og nokkrum sinnum hefur einhver rispað bíllin með lykli eða einhverju álíka, bara til þess að eyðileggja lakkið, ekki gert neitt annað.
Ég kíkti á linkinn sem virðist vera á nokkuð áreiðanlegri síðu. Trúi þessu samt sem áður ekki… Þeir eru helvítis paranoid vitleysingar ef þeir gerðu þetta.
Það eru engar hraðbrautir á Íslandi af því að það er svo lítið að það myndi ekki borga sig, peningalega séð og líka bara af því að það þarf ekki, það er ekki það mikið af fólki að keyra á vegunum okkar. Til hvers þarftu hnífa sem eru bannaðir hérna? Ekki eins og þetta sé hættulegt umhverfi og þú þurfir rosa fínan hníf til að lifa af. Byssur eru bannaðar að þeim einföldu ástæðum að þær meiða fólk. Og til hvers í ósköpunum langar þig í neonljós undir bílinn þinn? Einhver minntist á...
Þetta hlýtur að vera grín… Ég hélt að Bandaríkin væru frjálst land, mátt skrifa það sem þú vilt :O Plús það að venjulega er tilvist drauga ekki viðurkennd af yfirvöldum. Og hvað ef þetta var bara saklaus drengur að skrifa skáldsögu í dagbókina sína? Come on fólk… Þetta er rugl. Ég trúi ekki að þetta sé satt.
Ætlaru að setja eitthvað á móti Dagafara? Kannski hefur hann rétt fyrir, kannski hefur hann rangt fyrir sér og þá er um að gera og reyna að giska á rétt svo að þú græðir 50 kr ;)
Nú er nóg komið. Sendu þeim bréf! Þetta hlýtur að vera samráð, það getur ekki verið að það séu 2 með sama verð og 10 aura munur á hinu, bara svona af tilviljun…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..