Ég nenni því ekki… Ég geri aldrei neitt merkilegt eða peningatengt í þessari tölvu hvort sem er, það er allt í lagi að ég sé með einhvern smávírus sem gerir ekkert við stýrikerfið sjálft. Og ef þetta hrynur hjá mér set ég bróður minn bara í málið…
Og karlarnir eiga þá væntanlega að vinna frá morgni til kvölds til að sjá fyrir konunni sem vinnur ekki? Ég skal segja þér að það gengi ekki upp á meðal íslensku heimili. Flest heimili reiða sig á tekjur beggja foreldra.
Ég fer út úr húsi til að fara í skólann… og hitta vini mína, sem ég á nú þegar, stundum. Ég spila á píanóið þess á milli sem ég er á huga, það er áhugamál. Ég hef ekki áhuga á neinu öðru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..