Það er reglulega hringt heim til mín og spurt hvort þetta sé hjá Plastprent. En ég hef nokkrum sinnum lent í því að fá sms voru ekki ætluð mér, man samt ekki hvað stóð í neinu þeirra.
Þegar ég vill ekki blotna þá þoli ég hana ekki. En ef ég til dæmis veit að það er rigning og fer út í fótbolta þá er hún frábær. Það er frábært að vera í fótbolta í rigningu á grasvelli.
Já, ég tók einmitt líka eftir þessu þegar ég var að vinna þarna við myndina, notabene vinna við myndina ekki leika í henni. Það kom mér á óvart hvað hann var gamall að sjá.
Það er kannski ekki hjátrú en ég öskra alltaf á mína menn ef þeir eru ekki að standa sig. Bölva þeim hægri vinstri ef þeir eru að taka heimskuleg skot, einspila of mikið, gefa lélegar sendingar og fleira þess háttar. Svo líka ef ég fæ á mig mark eða tapa þá ber ég örðu hvoru í skrifborðið eða slæ tölvuskjáinn. Stundum hendi ég líka syrpu í skjáinn. Þetta er svona eiginlega hjátrú hjá mér.
Guð minn almáttugur að fólk skuli geta fengið sig til að segja “spúla”, þetta orð er svartur blettur á íslenskunni. Það er bæði skrifað asnalega og hljómar illa. Það er einfaldlega ljótt. Mín skoðun. Annars segi ég “smúla”.
Hef lent í þessu tvo tímabil í röð með Juve á móti Milan, og á sömu stöðum í sömu keppnum, nánast sama dagsetning líka. Núna á þriðja tímabilinu fer að nálgast þennan tíma sem ég hef mætt Milan, það verður spennandi að sjá hvort það gerist aftur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..