Ég er nýbúinn að setja EMG active pickuppa í gítar (81 og 85…big surprise) og það var ekkert mál. Þeir eru með svona quick connect solderless dæmi, þannig að það eru bara svona sér tengi á öllum hlutunum (pottum, pickuppum, jack tenginu og öllu). Það fylgja sem sagt með pottar til þess að skipta út. Svo skoðar maður bara leiðbeiningarnar og þá er þetta pís of cake.