Það þykja mér tíðindi að Dal þyki að sé vegið með ófínum kveðskap á Huga (þó jafnan hafi sjálfur gert landi og þjóð hátt undir höfði með framúrstefnulegum hendingum og dásemdar draumhyggju) þrátt fyrir að ógrynni kveðskapar af fátæklegri hugmyndaauðgi sé hér að finna. Ég geri ráð fyrir að orðbragð það er vér brúkuðum (rímar einmitt við kúkuðum) hafi farið öfuga leið upp til viðkvæmra heila-tauga og viljum vér í auðmýkt óska oss fyrirgefningar allra þeirra viðkvæmu urta er berja þennan vef...
Ferskeytlan er náttúrulega hið eina og sanna form alþýðukveðskapar. Þær eru jafnan hnyttnar og skemmtilegar þegar þær fjalla um menn og málefni í deiglunni, hitt er annað mál að ferskeytlan er líka form sem má nýta til “alvöru” ljóðagerðar. Það er hinsvegar erfitt form fyrir þá sem ekki kunna vel fræðin. Ég óska eftir að sjá sem mest í ferskeytlu-búningum á Huga en vona að mönnum beri gæfa til þess að sjá hvað er til gamans og hvað eru “alvöru ljóð”. Megi krafturinn fylla ykkur. Hic!
Ég bjó til eins ljótt ljóð og ég gat. Þetta var árangurinn. Ég var að tékka á því hvort ljóð í þessum gæðaflokki færi á greinar eða korkinn. Núna er mér ljóst að allt sem skrifað er fer á greinar fullnægi það lágmarkslengd. Megi frumkraftur náttúrunnar gefa ykkur ómælda þolinmæði til að höndla óbætanlegan tíma sem er til einskis við lestur á Huga. (að mestu)
Af öllum þeim voðalega hroða sem berst í stórum skömmtum inn á huga-ljóð þessa dagana, er þetta bara fjári gott og ég skora á þig að reyna meira fyrir þér á þessum vettvangi, það er heilmikið í þig spunnið.
Þetta er mjög frambærilegt ljóð, það besta sem ég hef séð lengi. Heidagv: svona segir maður ekki, jafnvel þó ljóðið höfði ekki til þín persónulega. Skamm.
Það er gaman að sjá hefðbundnar ljóðatilraunir og ég sé að fólk er orðið langsótt í að heyra rím og stuðla. Það er svolítið hik í atkvæðunum hjá þér og stuðlar ekki við áhersuna en prýðilegt þó.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..