Eitt skemmtilegasta og athyglisverðasta “hrós” sem ég hef fengið á mínum stutta og vafasama plötusnúðaferli er “Djöfull er gaman að sjá plötsnúð róta í plötutösku svona til tilbreytingar.” Annars nenni ég ekki að fara að rífast um þetta, en ég ætla að nota þetta eins lengi og ég mögulega get. Ekkert af hinu draslinu toppar tilfinninguna eða sándið.