Ég held að sterkasta stjórnin verði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Ég held að vinstri stjórn sé ekki málið, þannig stjórnir hafa aldrei haldist út kjörtímabilið auk þess sem það væri ávísun á hærri skatta. Er það það sem fólk vill? Það er búin að vera hægri stjórn á Íslandi í 16 ár og við höfum það frábært! Það er til vinna fyrir alla þá sem vilja vinna, við getum farið í skóla og lært eins og okkur sýnist, matvöruverð hefur lækkað o.sv.framvegis.