Já, ég er allavega að fíla hann.. Er líka á ágætis verði. Calling, Goldmine og Harajuku eru búin að spilast mest hjá mér í dag, myndi ég segja. Flott hulstur, líka. Hohoho..
Ég las einhverstaðar að ef þeir gera aðra seríu, muni hún gerast nokkrum árum seinna.. (Þ.e.a.s. að hoppa yfir “college”. Þau eru búin með high school eftir þessa seríu.) Og ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það.
Já, en það er nú munur á því að kannski skrifa eitt orð vitlaust, eins og þú gerðir þarna, og að verað að skrifa svona bestast. Stundum á maður voðalega erfitt með að skilja hvað fólk er að reyna að segja..
nei þú verður víst að eyða pening í hvern og einn aukapakka ef þú vilt þetta allt. Ég veit ekki til þess að að sé hægt að kaupa þetta allt í einum pakka (Nema þá bara að kaupa alla í einu, hoho. Minnkar ekkert verðið við það)
Haha nei.. Ég þurfti að skoða textann og hlusta á meðan til þess að ná honum. Það eina sem ég náði eftir fyrstu hlustun var “a tiger trapped inside a cage” og ekkert annað.
Hmmm… Þetta er reyndar svolítið erfið spurning. Hvað vantar meira í leikinn? Mér dettur ekkert í hug. Mætti kannski bæta fleiri samskiptarmöguleikum. The Sims 2: Social hehe. Nei ég veit ekki. Engar basic hugmyndir. (:
Já. Fyrsti veturinn minn var snjólaus fyrstu dagana, svo kom léttur snjór og síðan kom þykki snjórinn. Sem bráðnaði svo, og svo snjóaði aftur mikið um vorið. Gaman hvað þetta er óútreiknanlegt. :D
Árstíðin í hverfinu tengist ekki árstíðunum á hverri lóð fyrir sig. Allar lóðir virðast byrja þegar sumarið er að enda og haust alveg að koma. (Kannski því að Sims án Seasons hefur alltaf sumar, ágætt að byrja þannig)
það er allavega mestar líkur á að hún komi á veturna. Meiri líkur á að hún komi ef það er snjókarl eða fuglahræða á lóðinni. Hún talar við þá.. Annars er þessi mörgæs ekkert spes.
Meh ágætt lag. Maður myndi strax heyra að þetta væri sænska lagið. Er alveg með svona týpíska sænska eurovision takta í grunninn finnst mér. (sem ég fíla ekki blöööörrhh)
100% sammála um myndbandið, vantaði meiri lit og þessi skot af Eiríki ekki alveg nógu góð af.. nokkrum ástæðum.. :S Hugsaði líka “amateur”. Annars finnst mér lagið fínt, svolítið skrýtinn texti…. A tiger trapped inside a cage.. Eða eitthvað. Hahaha. Vá.
AKKÚRAT ætla rétt að vona að hann hafi ekki litað það (neita að trúa því) Ef ég hefði gert þetta vídeó hefði ég látið rauða hárlitinn njóta sín. Og haft betri birtu í þessum close-up skotum… Og fleira. Bætt við 12. mars 2007 - 20:29 vantaði meira litacontrast í þetta vídeó fannst mér. Rauða hárið hefði poppað þetta aðeins upp
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..