Einhver hér sagði: “Rokkið er dautt” hah! Ég blæs á slíkar yfirlýsingar! Eins og Radíó Reykjavík menn segja “Rokkið er dautt… lengi lifi rokkið!” (fyrir þá sem fatta ekki, tekið úr sögufrægu setningunni: “The King is dead… Long live the King!”) Sem sagt rokkið er fyrir löngu orðið ódauðlegt. Meira en nóg til af frábæru rokki eftir alla gömlu meistarana, og nokkrir sem halda uppi hefðinni enn í dag, hvað spilun varðar, og NÓG af fólki sem nýtur enn gömlu meistaraverkanna. Rokk deyr ekki...