Ef þér finnst eitthvað, þá hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því. Ef skoðun þín er ekki í samræmi við þá skoðun sem ég vill að fólki hafi á mér, þá vill ég vita afhverju svo ég geti komið í veg fyrir að fólk hafi slæmar skoðanir á mér.
Ég geri ráð fyrir að þú sért búinn að prófa mismunandi samsetningar af “compatibility mode”, og búinn að leita að patchi á netinu ? Líka spurning um að setja hann upp aftur og updeita hann.
Mér er ekki sama hvað þér finnst. Ef það er einhver ástæða til að áætla að allir félagar tölvu- og kókistafélagsins séu hálfvitar, þá vill ég vita afhverju svo ég geti reynt að laga það. :) Heimurinn verður ekkert betri ef maður segir bara að vandamálin skipti ekki máli, eða ef maður neitar að horfast í augu við þau.
Þetta er mjög rétt hjá þér. Mín skoðun er sú að það sé ekki mitt að hjálpa þessu fólki. Hatið mig fyrir mína skoðun ef þið viljið, en hvað ég er annað en texti sem berst ykkur í gegnum símalínu?
Þú ert nú alveg frábær fantasia mín :) En þú mátt sleppa því að gera mér upp skoðanir, og sleppa því að ýkja þær sem fyrir eru. Auk þess máttu sleppa því að opinbera einkasamtöl á veraldarvefnum í þeim tilgangi einum að særa fólk. kv. duff :)
Þú ert í ruglinu. Fordómar eru eitt, að hata útlendinga er annað. Eins og orðið “for-dómar” gefu til kynna þá er verið að dæma eitthvað fyrirfram, þeas. áður en sá sem dæmir hefur kynnt sér viðfangsefnið til hlítar. Þeir sem hata útlendinga hafa oftar en ekki kynnt sér málefni þeirra og aðstöðu áður en þeir taka þá ákvörðun að hata þá. Ekki alhæfa, þú ert vitlaus. :)
Er ég að þræta hvað … ? Ég er bara að biðja þig um að koma með betri rök fyrir þeim heiðri sem mér hlotnast við að fá að vera á þessum lista þínum. Þú þekkir mig ekki, þú hefur ekki hugmynd um minn hugsunarhátt og þú ert eflaust ekkert skárri sjálfur. Kallar mig svo hálfvita. Og btw. það kallast “vanvirðing” en ekki “óvirðing” :)
Geturðu sagt mér afhverju þér finnst DisaHoney, Chesner, Albus, DrMengele, Duff, CrazyTiny, flang3r, datoffy, funkymonkey, Wappius, peturius, GnoMe, Haukzi, ZinderLoc, ospin og Gellan123 vera hálfvitar ? Hvað gerði þetta fólk þér ?
Rétt þykir að líta á orðið “fjólugrænn” sem rökvillu. Svipað og að setja saman orðin “rap music” þar sem augljóst er að rap er ekki tónlist. Fattaru ? Það er þessvegan sem þeir fundu upp orðið “brúnn”. :)
Fjólublár er rauður + blár, grænn er blár + gulur þannig að fjólugrænn er eiginlega samblanda af öllum litunum, ef maður myndi prófa þetta með málningu þá fengi maður líklega bláleitan brúnan lit. :) Samt er hann ekki til. Einhyrningar ekki heldur.
Gaman að fólk skuli brosa þegar tölur, sem hana í rauninni enga eiginlega merkingu, hækka. Bara það að einhverjar tölur skuli hækka gerir mann glaðan. Funny.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..