Ég held að ég sé með glútenóþol, er að fara að tékka á því bráðum. Eins og sumir hérna hafa sagt þá eru heilsubúðirnar og Hagkaup með gott úrval af glútenlausri fæðu, t.d. er Heilsuhúsið (Laugavegi og Kringunni). Ég fæ mér glútenlaust morgunkorn í morgunmat sem ég keypti þar og það er fínt á bragðið. Ég á líka glútenlaust pasta og glútenlaust pizzadeig, á reyndar eftir að prófa deigið en pastað er fínt :) Eina brauðið sem þú getur borðað að því er ég best veit er spírubrauð. Ég hef prófað...
Já ég get, ætla og skal halda áfram en ekki hræðast þetta :) Tek bara dugnaðinn á þetta… Já ég hlakka til að prófa innranetið hjá Boot Camp. Takk fyrir svarið!
Takk fyrir þetta. Ég er búin að skrá mig og byrja á mánudaginn. :D Hlakka til en er líka frekar kvíðin hehe. En sem betur fer verður vinkona mín með mér, við getum stutt hvor aðra :) Ég hlakka svo til að komast í geðveikt gott form! Ég er frekar grönn en mætti samt alveg vera þónokkuð stæltari og betur vaxin að mínu mati og ég vona að ég hafi valið rétt prógramm fyrir mig :) Annars veit ég um mjög fáa sem fíluðu þetta ekki, sem er gott…=) Þeir eru líka með mjög gott tilboð núna, 12 vikur á...
Blautt meik: Lancome Sólarpúður: Lancome Maskari sem ég nota við sérstök tilefni: Lancome Hypnose Maybelline Great Lash maskari Gosh Amazing Length and Build vatnsheldur maskari Sothys eyeliner Victoria's Secret gloss Og einhverjir augnskuggar frá Body Shop og No Name.
Nákvæmlega. Ég leit á leikfimi sem góða og skemmtilega leið til að hækka meðaleinkunnina mína. Aftur á móti fannst vinkonu minni í menntaskóla alveg ótrúlega ósanngjarnt að leikfimiseinkunnin væri reiknuð með í meðaleinkunninni, enda er hún ein latasta manneskja sem ég þekki. :D
Takk fyrir þetta. Ég er bara einhvern veginn svo hrædd við þetta… Kærastinn minn prófaði einn eða tvo tíma og hann hefur ekki einu sinni trú á mér :P Mig langar samt rosalega að komast í geðveikt gott form þannig að kannski ég slái bara til. Líkamsræktarkortið mitt rennur út næstu mánaðamót þannig að ég verð bara að vera hörkudugleg í ræktinni þangað til svo ég verði sem best undirbúin :) Ætti ég kannski frekar að kaupa einn prufutíma í Boot Camp fyrst?
Hann er 100% áreiðanlegur og traustsins verður, hann er hreinskilinn, hvetjandi, fyndinn, duglegur, með gott hjarta, afslappaður… Svo dæmi séu tekin :)
1. Milo Ventimiglia. 2. Adam Brody. 3. Jason Lewis. 4. Eric Dane. 5. Alexander Rybak. Annars í real life fíla ég sæta nörda, enda er kærastinn minn svolítið þannig :) Bætt við 15. júní 2009 - 22:17 Oooog Ryan Gosling! :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..