Er ekki reiður, bara nett pirraður. Ég hlustaði á þessa plötu og fannst hún góð, svo var ég að skoða /rokk um daginn og hugsaði “Hey, kannski ég sendi bara inn smá umfjöllun um þessa plötu”, því mig langaði að deila henni með fleirum. Svo fær maður bara tóm leiðindi vegna þess að umfjöllunin er ekki nógu löng fyrir einhverja… Það liggur dágóð vinna að baki þessari umfjöllun, þó hún sé ekki mjög löng, og mér finnst leiðinlegt að sjá hvað mörgum finnst auðvelt að rakka niður hlutina.