Þetta eru mjög góðar pælingar. Ég hef reyndar verið að pæla dálítið í neðra hægrahorninu, á bandarísku kápunni, þar er eitthvað sem virðist vera brotið tré. Ég er búinn að vera að reyna að muna hvort að við höfum séð einhvern svona stað í bókunum en ég man ekki eftir neinum. En það gæti vel verið að þetta sé staður sem við höfum ekkert heyrt um áður.