Það er tvennt sem stendur upp úr. Það fyrra gerðist fyrir tæpu ári. Bekkjarbróðir minn, sem var góður vinur minn, var bráðkvaddur, ekki einu sinni mánuði eftir að við fermdust. Ég var nokkuð lengi að ná mér eftir það. Það seinna er á léttari nótum. Fyrir nokkrum árum vorum við fjölskyldan á ferðinni um landið og við vorum á Ólafsvík eða Þórshöfn, ég man ekki alveg hvort. En jæja við vorum þar og ég var að labba með yngri systkin mín á leikvöll, sem við sáum á leiðinni á tjaldstæðið, og við...