Hvers konar spurning er þetta? Vegna þess að þeir eiga ekkert erindi þangað almennt. Þú gerir þér grein fyrir því að það eru ekki seld karlmannsundirföt í þessari búð, þar af leiðandi er ekkert fyrir þá að máta þarna, þar af leiðandi eiga þeir ekkert erindi í mátunarklefana. Þess utan, hef ég oftar einu sinni og oftar en tvisvar, séð karlmann kíkja inn í mátunarklefa þarna hjá kærustu/vinkonu til að gefa álit, og í stuttu máli sagt gerði enginn veður yfir því.