Ég vil endurtaka að það er stór munur á því að langa í Kók eða Pepsí, þetta er einfaldlega ekki sami drykkurinn. Þú getur ekki verið mikill Kók eða Pepsí smekkmaður fyrst þú vilt meina að bragðmunurinn sé lítill eða hvað þá “upplifunin”. Hvað ef við setjum Coke light, Coke Zero og Pepsi Max inn í dæmið, er það sama glundrið/lítill munur fyrir þér? Dæmi um hversu ólíkir drykkirnir eru: Pepsí freyðir meira og það er miklu mun sætara, til dæmis. Ég ætla sumsé að vera þér hjartanlega ósammála!