Ég er sammála báðum ræðumönnum hér að ofan um að stelpur á þessum aldri eru furðulegar, en það sem mér fannst svo týpískt, var þegar hún sagði þér að hún hafi farið á strákaveiðar! hún var bara að gera þig afbrýðisamann!! Þetta er alveg óþolandi þegar stelpur haga sér svona!!! Mín fyrrverandi var alltaf að segja mér frá einhverjum gaurum sem hún var með, og braut mig niður smátt og smátt, eiginlega án þess að ég tæki eftir því, sem gerði það að verkum að ég varð bara einn hrifnari af henni...