Hvað þarf plötusnúður að gera til að eiga þessi verðlaun skilið? Galdrabrögð? Hlutverk plötusnúðsins er að spila tónlist, það er það sem Sóley gerir. Hún er greinilega vinsæll plötusnúður, annars hefði hún ekki náð þessari kosningu! Er ekki nóg að hún beri titlinn “plötusnúður ársins”? Viljum við í alvörunni að hún sé umdeildasti plötusnúðurinn líka? Þann vafasama titil finnst mér hún ekki eiga að bera, látum Ívar Amore (ekkert illa meint) um það!