Led Zeppelin, AC/DC, The Cranberries, Ligabue, Dikta, Five for Fighting, Sigur Rós, Jeff Buckley (ekki hljómsveit, en samt! Verður að vera á listanum), Marlene Kuntz, o.fl o.fl :)
Ég er að fara 9. ágúst :) Hef ekki farið áður, en ég var búin að lesa smá um þetta. Það er til dæmis klúbbur þar, ég man því miður ekki hvað hann heitir :( En hann er held ég breskur, og í lok kvöldsins er klúbburinn fylltur af froðu eða svona bubble-bath dæmi. Við ætlum að kíkja þangað, þ.e.a.s ef við finnum nafnið á honum aftur :)
Ooh hann fer svo í taugarnar á mér!! Ég held með Delana, og verð að viðurkenna að ég vona að Magni komist langt :) Mér finnst hann einfaldlega einn af þeim bestu! Annars fannst mér Delana alls ekki standa sig vel í síðasta þætti :(
En veistu, ég efast um að tannlæknirinn hafi deyft þig bara til þess að vera vondur við þig. Þeir deyfa ekki nema þess þurfi, og það hefði örugglega verið verra hefði hann ekki deyft þig. Ég fór í tannaðgerð í vetur, hætti að telja eftir 5 skammta af sprautunni :( Pain, en væri verra ef deyfingunni væri sleppt ;)
Hvað er steikt við það? Þetta er áhugamálið “Heimilið”, ég sé ekki betur en að greinin mín eigi vel við hér. Fyrst þetta fór svona fyrir brjóstið á þér, þá skaltu ekkert vera að skoða meira á þessu áhugamáli, það virðist ekki eiga við þig.
Hverskonar grein er þetta?Þetta er grein um loft í herbergjum. Fór það framhjá þér? Vá, á fólk sér líf?Ég á mér alveg sæmilegt líf, takk fyrir. Þar sem ég hef sjálf lent í því að það sé þungt loft og vond lykt í herberginu sem ég deili með kærasta mínum og húsdýrum, þá fannst mér tilvalið að skrifa um hvað ég geri til að fá betra loft. Þú ættir kannski að standa upp frá Wolfenstein og fá þér ferskt loft. Mig grunar að þú hafir gott af því.
Ég keypti hp fartölvu árið 2001, svo bilaði hún stuttu eftir að hún féll úr ábyrgð, en það var mér að kenna. Fékk mjög góða þjónustu hjá Opnum Kerfum! Áður en ég keypti fartölvuna 2001 áttum við HP turn í einhvern tíma. Svo nota ég HP í vinnunni, það eru yfir 200 slíkar þar :) Ég hef ekkert nema góða reynslu.
Ég spila Unreal Tournament, UT2k4, Black&White, systir mín spilar Sims2 á tölvunni minni, svo á ég fleiri leiki sem ég á eftir að prófa, plús slatti af eldri leikjum. En ég hef ekki lent í neinu sem tölvan ræður ekki við, allavega ekki ennþá :) Þetta er allavegana mjög gott verð, að mínu mati, fyrir þessa tölvu!
Fjölskylda mín er að fara þangað 3. ágúst, en ég og kærastinn ætlum ekki með, ætlum til Benidorm viku seinna í staðinn :) Ég fór til Costa del sol í fyrra, það var mjög gaman! En ég var ekkert mikið á djamminu, og var hálf blönk allan tímann.. Ég var meira bara á pöbbarölti :)
Haha, heppinn þú! ;) Mamma mín er alltaf að biðja mig um að taka til í gamla herberginu mínu, en ég er flutt þaðan og er með fullt af drasli þar sem ég þarf ekki að nota :p Mamma vill nota herbergið sem tölvuherbergi eða eitthvað..
Ég og kærastinn minn vöskum upp 5-7 sinnum í viku. Við búum með pabba hans. Kærastinn minn þvær þvott frekar reglulega, ég ryksuga, allt nema herbergi pabba hans og barnaherbergið. Pabbi hans sér meira og minna um rest. Við kærastinn skiptumst á að þrífa undan hömstrunum :p Svo sjáum við alveg um okkar herbergi, en það er ofast alveg á hvolfi :(
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..