Æi ég þekki þetta :( Fyrir 2 árum hætti ég í sambandi, sem hafði verið frekar alvarlegt. Daginn eftir fóru foreldrar mínir út á land og voru þar í yfir 2 mánuði, ég ein heima. Hittu vini þína, fáðu þér nýtt hobbí, reyndu að gera eitthvað til að halda þér upptekinni. Ekki liggja bara heima og vorkenna þér. (ég meina þetta alls ekki illa, en ég gerði það, lá bara heima og varð virkilega þunglynd. Ekki gaman.) Gangi þér vel!!