Ég vann á Subway fyrir nokkrum árum… Túristarnir voru langbestu viðskiptavinirnir. Nema þegar þeir komu í rútuförmum 3 mínútum fyrir lokun. Ég man einu sinni þegar öll brauðin kláruðust, stelpan sem var á vaktinni á undan hafði gleymt að baka þau. Ég var auðvitað byrjuð að baka þau, en þau voru ennþá að hefast. Það varð BRJÁLAÐ að gera, ég var ein á vakt, og auðvitað kláruðust brauðin. Ég hringdi í vin minn sem kom og hjálpaði mér, hann vann þarna líka, svo hringdi ég strax á alla staðina,...