Veit ekki hvað T-sportinn og Fiestan kosta, en af öllum smábílum þá held ég að Renault Sport Clio 197 sé sá allra skemmtilegasti og best búni, en kostar eflaust eftir því, enda er hann í sama performance flokki og Civic Type R, Golf GTI og Astra OPC. Sjálfur á ég RS Clio 172 og er það lang skemmtilegasti bíll sem ég hef átt, léttur, öflugur og mjög vel búinn.