Sony Ericsson K700 og K500 eru snilldar símar. Ég nota sjálfur K700 og er mjög ánægður. Þeir sem tala um að hann sé hægur, ættu að drífa sig með símann á verkstæðið hjá Símanum og láta uppfæra í honum hugbúnaðinn, því ekki aðeins verður siminn mun sprækari, heldur er líka hægt að hafa valmyndina í honum á íslensku. Íslensk valmynd í K500 er a leiðinni. Ef þörf er á sterkum síma, myndi ég gefa Siemens S65 sjens. Honum er haldið saman með málmramma, þannig að hann á að haldast saman hvað sem...