Ég held að beina útsendingin þurfi að vera í opinni dagskrá, ekki alveg viss með endursýningar. Ég held líka að fólkið hjá rúv hafi verið farið að þekkja okkur þegar þeir voru með sýningarréttinn. Ef það kom fyrir að sendirinn nálægt okkur bilaði á meðan það var útsending, vorum við alltaf að hringja, og allir í kringum okkur líka.