Já, það eru sko kröfur í lagi!!! Nei, það eru sko engar kröfur um þyngd í bekkpressu eða neinu þess háttar, enda held ég að þá fengju nú ansi margir reisupassann. Það er hins vegar æskilegt að vera ekki algjör væskill, sérstaklega þegar þú vinnur fyrir Flugfélag Vestmannaeyja, eða einhver konar leiguflugsfyrirtæki þar sem flugmennirnir þurfa venjulega að höndla farangur og vörur sjálfir, svo ég tali nú ekki um sjúkraflugið.