Þessi búð með rappinu er að öllum líkindum Þruman. Annars er mín reynsla af Skífuna í flestum tilfellum góð, fyrir utan verðið sem er auðvitað fáránlegt. En eins og einhver sagði þá eiga þeir oft diska á bakvið sem er ekki í hillunum frammi. En úrvalið þar, t.d. í klassík, er til hreinnar og beinnar skammar. Ef ég fer inn í klassísku/jazz deildina í Japis blasa við mér stórir standar, þar af einn bara frá Naxos, þar sem hægt er að finna flest tónskáld sem hafa komist á blað í...