Er ég sá eini sem tek þennan leik fram yfir nýjustu FM leikina? Þetta var fyrsti Manager leikurinn sem ég spilaði af einvherju viti og ég féll fyrir honum eins og prins sem kyssir frosk sem breytist í spólgraða Jessicu Alba. Allt var svo einfalt: Æfingar, taktík, liðsuppstilling og allt annað var einfalt en samt krefjandi. Síðan ég byrjaði að spila þennan leik hef ég gert Southport að margföldum Evrópumeisturum, Alavés að stórveldi á Spáni og Burghausen að besta liði Þýskalands. Hvenær sem...